aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka?
Þekktu þinn viðskiptavin
KYC kerfið eða Áreiðanleikakannanir í Hluthafaskrá er ætlað til utanumhalds og framkvæmdar áreiðanleikakannana og stenst þau lög sem tilkynningaskyldir aðilar falla undir um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
Kerfið gerir notendum kleift að framkvæma áreiðanleikakannanir á einfaldan hátt og öðlast góða yfirsýn á viðskiptavinum, lögaðilum og einstaklingum.
Góð yfirsýn
Haldið er utan um alla viðskiptavini á einum stað og er sjálfvirk áminning þegar þörf er á nýrri könnun. Allar aðgerðir eru skráðar og aðgengilegar gagnvart eftirlitsaðilum.
Skýrsla sótt
KYC skýrsla er sótt úr Hlutafélagaskrá [til RSK] með gildandi skráningu og raunverulegum eigendum, fyrir hvert félag eða mörg í einu.
Spurningalisti sendur
Spurningalisti er sendur út á tengilið sem skráir sig inn með rafrænum skilríkjum. Aðgerðin er framkvæmd fyrir hvert félag eða mörg í einu.
Áhættumat skráð
Áhættumat er svo skráð með litakóða ásamt athugasemdum þegar öll gögn liggja fyrir, fyrir hvert félag eða mörg í einu.
